Fréttir

Aðalfundur Rafík 28.janúar kl.14.00
Rafíþróttir | 23. janúar 2023

Aðalfundur Rafík 28.janúar kl.14.00

Aðalfundur Rafíþróttadeildar Keflavíkur verður haldinn í íþróttahúsinu á Sunnubraut laugardaginn 19. febrúar kl 14:00.

Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Fundarsetning.
  2. a) Kosinn fundarstjóri  b) Kosinn fundarritari.
  3. Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfsemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  4. Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga stjórnar og félagsins í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.  
  5. Kosningar í stjórn Rafík
  6. Önnur mál.
  7. Fundarslit.

    Allir velkomnir