Fréttir

Keppnisgleði á haustmóti í rafíþróttum
Rafíþróttir | 6. nóvember 2026

Keppnisgleði á haustmóti í rafíþróttum

Rafíþróttadeild Keflavíkur tók þátt í haustmóti í rafíþróttum sem haldið var í Next Level Gaming í Egilshöll þann 25. október síðastliðinn. Níu iðkendur frá Keflavík mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði í fjölbreyttum keppnisgreinum þar sem hart var barist, en ávallt af drengskap og virðingu fyrir öðrum keppendum.

Mótið var vel sótt en yfir 40 krakkar frá rafíþróttadeildum víðsvegar af landinu tóku þátt. Þar gafst iðkendum okkar gott tækifæri til að spreyta sig gegn öðrum, öðlast dýrmæta reynslu og kynnast öðrum ungum áhugamönnum um rafíþróttir.

Einn af keppendum Keflavíkur tók þátt í tveimur keppnisgreinum í Minecraft og gerði sér lítið fyrir og sigraði í byggingarkeppninni. Þema keppninnar var leikföng og útfærslan hans vakti athygli, en hann fyllti Minecraft-heim sinn af fjölbreyttum leikföngum. Þá var hann einnig afar nærri því að ná sigri í þrautakeppni mótsins og munaði þar litlu.

Roblox Rivals var fjölmennasta keppnisgreinin sem iðkendur Keflavíkur tóku þátt í. Þar var keppt í tveggja manna liðum og voru fjölmörg lið mætt til leiks. Liðin okkar sýndu góð tilþrif, áttu sterkar umferðir og fögnuðu nokkrum sigrum á leið sinni í gegnum keppnina. Þrátt fyrir góðan árangur dugði það ekki til að tryggja sæti í úrslitum.

Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu vel iðkendur stóðu sig utan vallar sem innan. Keppnin var hörð og spennandi, en allir sýndu góða framkomu, íþróttamannslega hegðun og virðingu fyrir andstæðingum sínum. Þar var meðal annars að finna skemmtilegar viðureignir þar sem öll lið frá okkur mættust sín á milli.

Þátttaka í mótum sem þessum er mikilvæg fyrir Rafíþróttadeild Keflavíkur og þróun rafíþrótta almennt. Áhugi á greininni fer vaxandi og með fleiri slíkum viðburðum skapast tækifæri fyrir unga iðkendur til að þróa færni sína, kynnast öðrum og upplifa heilbrigða samkeppni í skipulögðu íþróttaumhverfi.

Markmið deildarinnar er meðal annars að styðja við þroska og framfarir ungra leikmanna, efla félagsleg tengsl og skapa jákvætt umhverfi þar sem allir geta lært, vaxið og notið sín.

Við hjá Rafíþróttadeild Keflavíkur erum stolt af okkar fólki, þátttöku þess og framkomu á mótinu. Við þökkum kærlega fyrir okkur og hlökkum til að halda áfram þátttöku okkar á mótum sem og þessu!