Aðalfundur Rafík 27.janúar kl.14.00
Aðalfundur Rafíþróttadeildar Keflavíkur verður haldinn í íþróttahúsinu á Sunnubraut laugardaginn 27.janúar kl 14:00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning.
2. a) Kosinn fundarstjóri b) Kosinn fundarritari.
3. Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfsemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.
4. Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga stjórnar og félagsins í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.
5. Kosningar í stjórn Rafík
6. Önnur mál.
7. Fundarslit.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar. Hafir þú áhuga að bjóða þig fram til formanns deildarinn þarf formlegt erindi þess að berast aðalstjórnar Keflavíkur fimm dögum fyrir settan aðalfund samkvæmt 20.grein í reglum Keflavíkur.
20. gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.
Allir velkomnir